Grensásdeildin 30 ára

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Grensásdeildin 30 ára

Kaupa Í körfu

GRENSÁSDEILD Landspítala Háskólasjúkrahúss á Grensási hefur starfað í þrjátíu ár um þessar mundir. Með sameiningu Sjúkrahúss Reykjavíkur í Fossvogi og Landspítalans við Hringbraut, var endurhæfing sjúkrahúsanna sameinuð undir eitt svið, endurhæfingarsvið. Þar starfa læknar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, sjúkraþjálfar, iðjuþjálfar, talmeinafræðingar, félagsráðgjafar, sálfræðingar, prestar, þroskaþjálfar, ritarar og ófaglært starfsfólk eða 240 manns. Endurhæfingarsvið starfar á fimm stöðum, við Hringbraut, í Fossvogi, á Landakoti, í Kópavogi og á Grensási, þar sem legudeildirnar eru til húsa. Deildin sinnir fyrst og fremst frumendurhæfingu og í einstaka tilfellum langtíma endurhæfingu. MYNDATEXTI: Þórunn Kristín Emilsdóttir ræðir við Sigþrúði Loftsdóttur og Eddu Valtýsdóttur iðjuþjálfa, en Sigurrós M. Sigurðardóttir og Ingibjörg Ólafsdóttir baka í eldhúsi, sérhönnuðu fyrir fólk með skerta hreyfigetu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar