Lýsuhólsskóli fagnar

Guðrún Bergmann

Lýsuhólsskóli fagnar

Kaupa Í körfu

PRÚÐBÚIN og eftirvæntingarfull börn tóku á móti gestum í Lýsuhólsskóla á degi umhverfisins í tilefni hátíðarhalda vegna afhendingar á grænfánanum. Í hátíðarsal skólans kynntu nemendur 7.-10. bekkjar forsögu þess að grænfánanum yrði nú flaggað við skólann þennan dag. Röktu þau hana til þess er verkefnisstjóri Staðardagskrár 21 í Snæfellsbæ, Guðlaugur Bergmann, kom að máli við skólastjóra og kennara skólans og hvatti þá til að taka upp umhverfisstefnu í anda Staðardagskrárinnar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar