Jeff Baird

Halldór Kolbeins

Jeff Baird

Kaupa Í körfu

Bandaríski matreiðslumeistarinn Jeff Baird verður önnum kafinn þessa helgi við að kynna Íslendingum hvernig útbúa eigi ekta, bandarískan dögurð eða "brunch". Baird, sem kemur hingað fyrir tilstuðlan bandaríska sendiráðsins, var með kynningar í Hagkaupum í Smáralind og Kringlunni og hjá Bakarameistaranum í Glæsibæ á laugardag og í dag, sunnudag, mun hann sjá um að matreiða dögurð fyrir gesti Lónsins á Hótel Loftleiðum frá klukkan 11 til 14. Myndatexti: Jeff Baird er sérfræðingur í dögurði við New England Culinary Institute.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar