KR sigraði Færeyjameistara HB frá Þórshöfn, 2:0

Sverrir Vilhelmsson

KR sigraði Færeyjameistara HB frá Þórshöfn, 2:0

Kaupa Í körfu

TVÍBURARNIR Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir kunnu vel við sig á iðjagrænu grasinu í Vesturbænum og lögðu grunninn að 2:0 sigri á færeysku meisturunum HB þegar keppt var um Atlantic-bikarinn í gær. KR sigraði Færeyjameistara HB frá Þórshöfn, 2:0, í hinni árlegu meistarakeppni Íslands og Færeyja í knattspyrnu á KR-vellinum í dag. Arnar Gunnlaugsson skoraði úr vítaspyrnu á 28. mínútu og Sigurvin Ólafsson gerði síðara markið á 60. mínútu. Bikarinn helst því á Íslandi því Skagamenn sigruðu B36 í fyrra, 2:1, en þá var leikið um hann í fyrsta skipti. Myndatexti: Kristján Finnbogason, fyrirliði KR, með bikarinn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar