Málverkafölsunarmálið

Sverrir Vilhelmsson

Málverkafölsunarmálið

Kaupa Í körfu

Dómarar, sérfróður meðdómari, verjendur og saksóknari í stóra málverkafölsunarmálinu fóru ofan í kjallara Kjarvalsstaða í gær til að kanna hvernig búið er um tæplega fimm þúsund skissur og vatnslitamyndir eftir Jóhannes S. Kjarval. Hátt í fimm þúsund myndir sem Jóhannes S. Kjarval málaði eða teiknaði á pappír eru geymdar í kjallara undir vesturálmu Kjarvalsstaða, flestar í tveimur stórum skjalaskápum. Eiríkur Þorláksson, forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur segir að aðstæður til varðveislu séu eins góðar og best verður á kosið. Hita- og rakastig er jafnt og myndirnar eru geymdar í sýrufríum pappír sem tryggir betri varðveislu. Myndatexti: Eiríkur Þorláksson, forstöðumaður Listasafnsins, sýnir hvernig geymslu myndanna er háttað.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar