Kvískerjabræður og fl.
Kaupa Í körfu
Til eflingar rannsóknum í Austur-Skaftafellssýslu. Kvískerjasjóður var stofnaður í Öræfum í gær. Sjóðurinn er stofnaður til heiðurs Kvískerjabræðrum, þeim Flosa, sem nú er látinn, Hálfdáni, Helga og Sigurði Björnssonum, fyrir framlag þeirra til rannsókna og öflunar þekkingar á náttúru og sögu Austur-Skaftafellssýslu. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að og styrkja rannsóknir á náttúru- og menningarminjum í sýslunni. Stofnfé sjóðsins er 25 milljónir króna og verður fyrst veitt úr honum árið 2004. Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra og Magnús Jóhannesson ráðuneytisstjóri undirrituðu skipulagsskrá sjóðsins við hátíðlega athöfn í Hótel Skaftafelli í Freysnesi að viðstöddum Kvískerjabræðrum. Frá vinstri. Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra, Sigurður Björnsson , Magnús Jóhannesson ráðuneytisstjóri , Hálfdán Björnsson , Helgi Björnsson.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir