Samherji 20 ára

Skapti Hallgrímsson

Samherji 20 ára

Kaupa Í körfu

HÁTT í 1.000 manns mættu í KA-heimilið á Akureyri í gær þegar Samherji hf. bauð til fagnaðar í tilefni 20 ára afmælis og Útflutningsverðlauna forseta Íslands sem veitt voru fyrirtækinu hinn 22. apríl síðastliðinn. Gestum var boðið upp á mat og drykk og voru margskonar fiskréttir reiddir fram, hver öðrum girnilegri. Þá hafði verið komið upp sögusýningu, þar sem sjá mátti ýmsa muni frá þeim 20 árum sem liðin eru síðan Samherji var stofnaður. Ræður voru fáar; Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri fyrirtækisins, ávarpaði gesti, auk þess Halldór Blöndal forseti Alþingis - en aðeins þeir tveir voru á mælendaskrá Kristjáns Þórs Júlíussonar, bæjarstjóra og veislustjóra, en Einar Benediktsson, forstjóri OLÍS, hlaut einnig náð fyrir augum veislustjórans og fékk að ávarpa gesti en Olíuverzlun Íslands hefur þjónustað Samherja frá upphafi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar