Haukar ÍBV handbolti Kvenna

Haukar ÍBV handbolti Kvenna

Kaupa Í körfu

Matthías Matthíasson spáir í stöðuna hjá ÍBV og Haukum "HAUKA-LIÐIÐ er sterkt og því eru svo sem allir vegir færir en það er ekki auðvelt fyrir það að fara til Eyja og vinna í tvígang eins og það þarf til þess að verja titilinn eins og nú er komið," segir Matthías Matthíasson, fráfarandi þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar, aðspurður hvort Haukar geti endurtekið leikinn frá því í fyrra og unnið þrjá síðustu leikina gegn ÍBV í keppninni um Íslandsmeistaratitil kvenna og þannig varið titilinn sem liðið vann í fyrra MYNDATEXTI: Gústaf Björnsson, þjálfari Hauka, réttir upp tvo fingur og telur að Eyjastúlkur hafi ekki getað skorað sigurmarkið úr aukakasti á aðeins tveimur sek. Ólafur Haraldsson dómari bendir Gústafi á að það hafi verið hægt. Hinn dómarinn, Guðjón L. Sveinsson, fylgist með. Í sjónvarpsútsendingu frá leiknum mátti heyra lokaflautið þegar knötturinn var kominn í markið hjá Haukum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar