Opið hús hjá leikskólum á Selfossi

Sigurður Jónsson

Opið hús hjá leikskólum á Selfossi

Kaupa Í körfu

LEIKSKÓLARNIR á Selfossi voru með opið hús á sumardaginn fyrsta og buðu gestum og gangandi að kynnast starfseminni. Fólk kunni vel að meta þessa tilbreytingu og börnin höfðu greinilega áhrif á foreldra sína að koma með í leikskólann til að skoða teikningar og listaverk. Ásamt því að þiggja kaffi og heitar vöfflur með sultu og rjóma. Svo notuðu börnin auðvitað tækifærið til að leika sér dálítið og sýna færni sína með því t.d. að grípa í hljóðfærin á leikskólanum Álfheimum eða í lita- eða myndakassa á meðan foreldrarnir kíktu í dagbækur sem sögðu frá vikulegum skógarferðum barnanna. MYNDATEXTI: Þessar stúlkur gripu hljóðfærin og sýndu færni sína.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar