Halldór Ásgrímsson í Reykholti

Davíð Pétursson

Halldór Ásgrímsson í Reykholti

Kaupa Í körfu

Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra afhenti í gær Snorrastofu í Reykholti málverk eftir Finn Jónsson, en myndin sýnir Reykholtsstað eins og hann leit út áður en Héraðsskólinn var byggður. Bergur Þorgeirsson, framkvæmdastjóri Snorrastofu, telur líklegt að bæjarstæðið, sem myndin sýnir, sé bæjarstæði Snorra Sturlusonar. Halldór rakti sögu málverksins við athöfnina í Reykholti í gær. Brunabótafélag Íslands færði norska tryggingafélaginu Store Brand málverkið að gjöf árið 1947 í tilefni aldarafmælis norska félagsins það ár. Mikið samstarf var á milli þessara tryggingafélaga á árum áður. Á síðasta ári ákvað norska tryggingafélagið að færa íslenska utanríkisráðuneytinu málverkið að gjöf, kvaðalaust. Halldór sagði að starfsmenn ráðuneytisins hefðu verið sammála um að besti staðurinn fyrir myndina væri Reykholt. Myndatexti: Myndin sýnir bæjarstæðið í Reykholti áður en Héraðsskólinn var byggður.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar