Keflavík - Grindavík 3:1

Halldór Kolbeins

Keflavík - Grindavík 3:1

Kaupa Í körfu

Margra augu beindust að Grindvíkingnum Lee Sharpe og margir biðu eftir að hann sýndi listir sínar er hann mætti með félögum sínum til undanúrslita gegn Keflavík í deildarbikarkeppni KSÍ í Egilshöll í gær. Kappinn náði sér ekki nægilega á strik og fyrstu deildarlið Keflvíkinga lét sér það í léttu rúmi liggja, hélt áfram góðri sigurgöngu sinni og vann með vel skipulögðum leik, 3:1, sem skilar þeim í úrslit gegn Skagamönnum. Myndatexti: Grindvíkingurinn Grétar Ólafur Hjartarson þrumar að marki Keflvíkinga og Ólafur Ívar Jónsson fylgist með álengdar. Keflvíkingar léku vel í Egilshöllinni og mæta Skagamönnum í úrslitum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar