Elfa Ágústsdóttir dýralæknir með læðuna Freyju,

Kristján Kristjánsson

Elfa Ágústsdóttir dýralæknir með læðuna Freyju,

Kaupa Í körfu

Kettlingafull læða var skotin, líklegast með loftskammbyssu, inn í miðju íbúðarhverfi við Múlasíðu á Akureyri um miðjan dag á laugardag. Elfa Ágústsdóttir dýralæknir gerði umfangsmikla aðgerð á læðunni á sunnudag og var hún við þokkalega heilsu í gær. Læðan, sem heitir Freyja og er eins árs, var gengin hálfa meðgöngu en hún missti kettlingana fjóra, auk þess sem fjarlægja þurfti annað nýrað og legið og sauma garnirnar. Myndatexti: Elfa Ágústsdóttir dýralæknir með læðuna Freyju, sem bar sig vel þrátt fyrir hina miklu aðgerð sem hún gekkst undir eftir skotárásina.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar