Samfylkingin

Sverrir Vilhelmsson

Samfylkingin

Kaupa Í körfu

Hann var vel sóttur fundurinn um málefni öryrkja sem Samfylkingin boðaði til í kosningamiðstöð sinni í Lækjargötu í gær. Þingmenn fluttu ávörp og ræddu við fundarmenn sem gátu líka gætt sér á kaffiveitingum. Heyra mátti í Halldóri Blöndal og Guðna Ágústssyni en raddir þeirra bárust reyndar úr barka Jóhannesar Kristjánssonar eftirhermu. Það voru frambjóðendurnir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Bryndís Hlöðversdóttir, Guðrún Ögmundsdóttir, Helgi Hjörvar og Jóhanna Sigurðardóttir sem boðuðu til fundarins og fluttu ávörp.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar