ÍR - Haukar 24:23

ÍR - Haukar 24:23

Kaupa Í körfu

"Ég vissi að Ásgeir myndi skjóta fast og því var bara málið að standa í fæturna og bíða eftir skotinu og það kom þar sem gamli karlinn stóð, flóknara var það nú ekki," sagði hetja ÍR-inga, Hallgrímur Jónasson, markvörður eftir að hann hafðii varið síðasta skot Hauka og komið þar með í veg fyrir að þeir jöfnuðu leikinn á síðustu sekúndu leiksins. ÍR-ingar fögnuðu sigri, 24:23, á heimavelli í Austurbergi eftir að hafa verið marki undir í hálfleik, 12:11. MYNDATEXTI: Robertas Pauzuolis nær skoti á mark ÍR þrátt fyrir góða varnartilburði hjá Einari Hólmgeirssyni og Bjarna Fritzsyni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar