Stykkishólmur

Stykkishólmur

Kaupa Í körfu

ÞAÐ mætti ætla að jólin væru að nálgast í Stykkishólmi samkvæmt þessum myndum. Svo er ekki, þær eru teknar í sumarbyrjun á fallegu vorkvöldi. Í Stykkishólmi var staddur hópur myndatökufólks í þeim tilgangi að taka upp auglýsingar fyrir erlent fyrirtæki þar sem verið er að auglýsa vodkategund fyrir grískan markað. Teknar eru tvær tökur á hverjum stað sem sýna vetur og sumar. Þar leikur mjólkurpóstur aðalhlutverkið og kemur með mjólkurflöskur til íbúanna og fer síðan með tómar flöskur í staðinn. MYNDATEXTI: Kúldshús í Stykkishólmi. Á myndinni er verið að undirbúa upptöku fyrir gerð auglýsingar fyrir grískan markað.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar