Bílslys

Kristján Kristjánsson

Bílslys

Kaupa Í körfu

Ökumaður fólksbifreiðar, sem grunaður er um ölvun við akstur, var fluttur á slysadeild FSA eftir umferðaróhapp á Glerárgötu á Akureyri skömmu fyrir miðnætti á laugardagskvöld. Ökumaðurinn kvartaði yfir eymslum í hálsi, samkvæmt upplýsingum lögreglu, en hann fékk að fara heim að skoðun lokinni. Bifreiðinni var ekið suður Glerárgötu en ökumaðurinn missti vald á henni sunnan Strandgötu með þeim afleiðingum að bifreiðin hafnaði á ljósastaur og valt á hliðina.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar