Beið lengi með að eignast barn

Rachel McAdams eignaðist son í apríl.
Rachel McAdams eignaðist son í apríl. AFP

Notebook-stjarnan Rachel McAdams eignaðist sitt fyrsta barn í apríl með kærasta sínum Jamie Linden. McAdams sem varð fertug fyrir tæpum tveimur vikum tjáði sig í fyrsta sinn um son sinn í viðtali við The Sunday Times

ABC greinir frá því að leikkonan segi í viðtalinu móðurhlutverkið það stórkostlegasta sem komið hafi fyrir hana og tekur lítið mark á því þegar fólk segi að lífið hætti að vera þeirra þegar það verði foreldrar. 

„En ég hafði 39 ár af mér, ég var leið á mér, ég var svo glöð að einbeita mér að annarri manneskju. Ég beið lengi,“ sagði McAdams sem beið lengi eftir því að verða móðir. „Og ég vildi ekki gera það fyrr en það var réttur tími.“

Líf McAdams snýst um sjö mánaða gamlan son hennar og sagðist leikkonan í viðtalinu ekki vera viss um í hvaða fötum hún væri í og skórnir hennar væru límdir saman. Þrátt fyrir allt það hefur hún aldrei skemmt sér jafn mikið og í móðurhlutverkinu. 

Rachel McAdams skartaði demöntum um helgina.
Rachel McAdams skartaði demöntum um helgina. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál