48 ára ólétt af sínu fyrsta barni

Stjarnan birti mynd af sér á samfélagsmiðlum og greindi frá …
Stjarnan birti mynd af sér á samfélagsmiðlum og greindi frá óléttunni. skjáskot/Instagram

Bandaríska fjölmiðlastjarnan Tamron Hall á von á barni sem væri kannski ekki fréttnæmt nema fyrir þær sakir að hún er 48 ára gömul og á von á sínu fyrsta barni. Hall greindi frá gleðitíðindunum á dögunum á Instagram. 

Hall greindi ekki frá væntanlegum frumburði fyrr en hún var komin 32 vikur á leið og en þá hafði læknir sagt að allt væri öruggt. Hún á von á barninu með eiginmanni sínum og segir mörg tár hafa fallið áður en hún komst á þann stað sem hún er nú á. 

People greinir frá því að Hall hafi áður greint frá löngun til þess að eignast barn og eftir á að hyggja hefði hún óskað þess að hafa byrjað að reyna það fyrr. 

„Þetta er langþráður draumur hjá henni og til að vera hreinskilin, í mjög langan tíma hélt hún að þetta væri ekki í spilunum hjá henni,“ sagði heimildarmaður People. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda