Jón frumflutti „Draumar geta ræst“

Jón Jónsson frumflutti lagið Draumar geta ræst í Breiðholtsskóla.
Jón Jónsson frumflutti lagið Draumar geta ræst í Breiðholtsskóla.

Draumar geta ræst er nýtt lag Barnamenningarhátíðar í Reykjavík 2019. Það er samið af Jóni Jónssyni við texta Braga Valdimars Skúlasonar.

Lagið varð til í góðu samstarfi við börn í 4. bekk í grunnskólum borgarinnar. Börnin horfðu á leikþátt sem fjallaði um að láta sig dreyma og að láta drauma sína rætast. Að því loknu veltu þau fyrir sér spurningum um hverjir draumar þeirra væru, fyrir þau sjálf, aðra og fyrir allan heiminn. Verkefnið tengist innleiðingu nýrrar menntastefnu Reykjavíkur en yfirskrift hennar er: „Látum draumana rætast.“

Bragi Valdimar fékk svör barnanna og vann upp úr þeim texta sem Jón Jónsson samdi lag við og nefnist það Draumar geta ræst. Krakkarnir munu flytja það með Jóni Jónssyni í Eldborgarsal Hörpu á opnunarviðburði hátíðarinnar sem er boðssýning fyrir nemendur 4. bekkjar í grunnskólum borgarinnar sem fer fram 9. apríl.

Jón frumflutti lagið í sal Breiðholtsskóla fyrir nemendur 4. bekkjar Breiðholtsskóla, Hólabrekkuskóla og Fellaskóla í dag og vakti lagið mikla lukku. 

Á Barnamenningarhátíð 2019 býður Breiðholt sérstaklega í heimsókn og verður fjölbreytt dagskrá fyrir fjölskyldur í Gerðubergi helgina 13. og 14. apríl nk.

HÉR er hægt að skoða dagskrá Barnamenningarhátíðar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda