Ef þú ert móðir af aldamótakynslóðinni eru miklar líkur á því að þú sért sérfræðingur í að gera mikið af hlutum í einu.
Samkvæmt Working Momkind á Instagram þá eru þetta konur sem eru vanar að vera í pössun sjálfar. Þær halda sínum hlutum á hreinu. Eru með eigin feril, bankareikning og félagslíf þrátt fyrir og einmitt þegar þær eru mömmur.
Þær styðja hvora aðra í því að láta drauma sína rætast. Þær vilja eiga börnin sín í sátt og samlyndi við barnsfeður sína sem virðast duglegri en margar aðrar kynslóðir í því að taka þátt. Þær fara seinna í samband og samböndin sem þær eru í virðast ganga betur en sambönd kynslóða á undan.
Ef til vill ættu eldri kynslóðir að nýta sér betur ráð þessara kvenna.