Hertogahjónin Harry og Meghan eignuðust dreng í morgun, 6. maí, að því kemur fram á Instagram-síðu hjónanna. Heilsast móður og barni vel en ekki kemur fram hvar barnið kom í heiminn. Drengurinn, sem er fyrsta barn hjónanna, var 3.200 grömm við fæðingu.
Hjónin ætla ekki að stilla sér upp fyrir ljósmyndara í dag eins og tíðkast hefur í konungsfjölskyldunni.