Tónlistarmaðurinn Sverrir Bergmann á von á sínu fyrsta barni í febrúar á næsta ári ásamt kærustu sinni Kristínu Evu Geirsdóttur lögfræðingi. Sverrir greindi frá væntanlegum erfingja á Instagram.
„Frumburðurinn væntanlegur í febrúar 2020,“ skrifaði Sverrir á Instagram og birti mynd af sér og Kristínu geislandi af gleði með sónarmyndir.
Barnavefur Mbl.is óskar parinu til hamingju með óléttuna.