Bandaríska fjölmiðlastjarnan Meghan McCain greindi frá því í löngum pistli á vef New York Times að hún hefði misst fóstur fyrir nokkrum vikum. McCain sem missti föður sinn í fyrra, fyrrverandi forsetaframbjóðandann John McCain, huggar sig við að fóstrið sé í öruggum höndum afa síns.
McCain er 34 ára og vinnur í sjónvarp. Hún var frá vinnu í nokkra daga sem vakti athygli fólks vestanhafs. Hún segist hafa vonað að fá að syrgja í friði en nú er hún hætt feluleiknum. Hún segir lítið talað um sorgina sem fylgir fósturlátum.
„Ég er hætt í felum. Fósturlátið var hryllileg upplifun og ég óska engum að upplifa það,“ skrifaði McCain. „Þrátt fyrir hryllinginn er þetta sorglega algengt. Það er talið að ein af hverjum tíu upp í ein af hverjum fjórum þungunum endi með fósturláti. Það eru þrjár milljónir barna sem við missum í Bandaríkjunum á hverju ári. Það er því enn gildari ástæða fyrir því að konur ættu að geta talað um þetta opinberlega án skammarinnar og þekkingarleysisins sem gegnsýrir málið.“
McCain segist hafa farið á flug þegar hún komst að því að hún varð ólétt. Hún segist hafa byrjað að hugsa um allt mögulegt, hvernig barnaherbergið ætti að vera og nöfn á væntanlegan erfingja.
Að sama skapi braut hún sig niður þegar hún komst að því að hún væri að missa fóstrið.
„Ég kenndi sjálfri mér um. Kannski var það rangt af mér að vera kona á framabraut, að vinna undir miklu álagi, sýnileg, undir miklu stressi, enn að jafna mig á fráfalli föður míns og á sama tíma beindust spjótin að mér sem opinberri persónu. Þetta er ekki kvörtun. Þetta er sannleikur. Ég kenndi aldri mínum um, ég kenndi persónuleika mínum um. Ég kenndi öllu því sem hægt er að ímynda sér um og það sem fylgdi því var mikil skömm.“