Sara Linneth L. Castañeda og Árni Páll Árnason, sem er betur þekktur undir listamannsnafninu Herra Hnetusmjör, eiga von á barni. Þetta tilkynnti parið í kvöld, en í færslu Söru á samfélagsmiðlinum Instagram kemur fram að von sé á barni í febrúarmánuði.
Það eru því ýmis tíðindin sem berast af lífi rapparans þessa dagana, en í dag ræddi hann einnig við mbl.is um stofnun nýs skemmtistaðar, 203, í miðborg Reykjavíkur.
Sjá má færslu Söru hér að neðan.
Barnavefur mbl.is óskar þeim til hamingju!