Fyrirsætan Elle Macpherson er orðin 55 ára að aldri og hefur sjaldan eða aldrei litið betur út eins og sjá má á nýrri forsíðu ástralska Vogue. Macpherson er sjálfstæð tveggja barna móðir í dag. Hún stýrir fyrirtæki sínu Welleco sem býður konum um víða veröld upp á þann valmöguleika að verða besta útgáfan af sér.
Macpherson á syni sína með athafnamanninum Arpad Busson. Þau voru saman á árunum 1996 til ársins 2005. Seinna giftist hún hótelerfingjanum Jeffrey Soffer. Þau skildu árið 2017. Síðan þá hefur hún sett athyglina á sjálfa sig, börnin og ferilinn.
Synirnir Arpad Flynn Alexander Busson sem er 21 árs og Aurelius Cy Andrea Busson sem er 16 ára sýndu í nýlegri myndatöku að þeir gefa móður sinni ekkert eftir þegar kemur að fyrirsætustörfunum. Þetta kemur fram á vef Vogue.
Macpherson býr í sögufrægu húsi í Ástralíu ásamt börnum sínum. Þetta er í fyrsta skiptið sem hún lætur ljósmynda sig með drengjunum fyrir tískutímarit. „Við höfum aldrei gert þetta áður. En okkur leist vel á þessa hugmynd. Strákarnir eru í fríi í skólanum núna svo við hefðum ekki getað valið betri tíma.“
Macpherson er mikil morgunmanneskja og segist vera dugleg að borða grænmeti. Hún pressar alls konar græna safa á morgnana og heldur sér þannig í frábæru formi enn þá.
Eins og sjá má á myndunum virðist fjölskyldan blómstra í Ástralíu, þar sem þau búa fallega og rækta fjölskylduböndin.