Uppistandarinn og leikkonan Amy Schumer íhugar það að gera heimildarþætti um meðgöngu og fæðingu sína. Schumer átti sitt fyrsta barn nú á vormánuðum og hefur verið mjög opinská um allt ferlið sem því fylgdi.
Hún spurði fylgjendur sína á Instagram hvort einhverjir myndu hafa áhuga á að horfa á heimildarþættina og fékk nokkuð góð viðbrögð. Leikkonan Glen Close sagðist hafa áhuga sem og fleiri þekktar konur í skemmtanabransanum.
Schumer þjáðist af morgunógleði alla meðgönguna, en það er alvarlegasta form morgunógleði og kallast hyperemesis gravidarum.