Grínleikkonan Amy Schumer er dugleg að minna konur á veruleikann sem fylgir því að eignast barn. Schumer segist til að mynda aðeins hafa losað sig við tæp fimm kíló síðan hún eignaðist son sinn í byrjun maí.
Schumer greindi frá þessu á Instagram og birti í leiðinni mynd af sér í sundfatnaði. Var myndin eins konar andsvar við upplýsingum Jessicu Simpson frá því í síðustu viku. Í síðustu viku greindi söngkonan frá því að hafa grennst um 45 kíló en hún þyngdist mikið áður en þriðja barn hennar kom í heiminn fyrir sex mánuðum.
Simpson virðist reyndar bara ánægð með Schumer. „Þú ert heit,“ skrifaði Simpson við myndina af Schumer og hélt áfram með húmorinn að vopni. „Stærðin skiptir bara máli þegar kemur að karlmönnum.“