Margrét Bjarnadóttir og Ísak Ernir Kristinsson eiga von á sínu fyrsta barni. Margrét er dóttir Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra og Þóru Margrétar Baldvinsdóttur innanhússráðgjafa.
Parið hefur geislað af gleði síðan þau hnutu um hvort annað en Margrét er í kokkanámi og Ísak Ernir er í viðskiptafræðinámi.
„Ég er sett um miðjan apríl og við erum full tilhlökkunar,“ segir Margrét í samtali við mbl.is.
Barnavefurinn óskar þeim hjartanlega til hamingju með óléttuna.