Hertogahjónin af Cambridge, Vilhjálmur og Katrín, hafa sent frá sér jólakort. Hjónin sendu kveðju og fallega mynd af allri fjölskyldunni til velunnara sinna en þau eiga enn eftir að senda frá sér jólakveðju á samfélagsmiðlum.
Á myndinni má sjá þau Vilhjálm Bretaprins, Katrínu hertogaynju og börnin Georg, Karlottu og Lúðvík litla á sumarlegum degi. Má sjá Karlottu standa á gömlum bíl og Vilhjálm og Lúðvík á gömlu vélhjóli.