Leikkonan Milla Jovovich varð 44 ára 17. desember. Ólíkt mörgum 44 ára gömlum konum á Jovovich von á barni. Í pistli á Instagram þakkar hún fyrir afmæliskveðjur og segir það kraftaverk að vera 44 ára og ólétt.
„Ég vil líka segja hversu ákaflega þakklát ég er fyrir lán mitt í dag. Að vera 44 ára og ólétt er svo mikið kraftaverk og himnasending en ofan á allt það var ég vakin upp með kleinuhringjablómvendi,“ sagði Jovovich um afmælið sitt og þakkaði börnum sínum fyrir.
Jovovich er gift leikstjóranum Paul W. S. Anderson og á með honum börnin Ever 11 ára og Dashiel fjögurra ára.