Áhrifavaldurinn og matarbloggarinn Linda Ben og eiginmaður hennar Ragnar Einarsson gáfu dóttur sinni nafn um helgina. Sú stutta fékk nafnið Birta.
Birta litla kom í heiminn hinn 1. nóvember síðastliðinn og er annað barn foreldra sinna. Skírnarveislan var að sjálfsögðu glæsileg að hætti Lindu Ben sem hefur sýnt frá undirbúningnum á Instagram síðustu vikuna.
Barnavefur Mbl.is óskar fjölskyldunni innilega til hamingju með nafnið!