Leikkonan Amanda Bynes á von á sínu fyrsta barni með unnusta sínum Paul Michael. Parið tilkynnti óléttuna á Instagram í gær en hafa þau nú eytt færslunni. Þetta er þeirra fyrsta barn saman en óljóst er hvenær von er á því í heiminn.
Snemma í síðustu viku virtust þau Bynes og Michael vera hætt saman, þremur vikum eftir að þau trúlofuðu sig. Í lok vikunnar kom Michael hins vegar í viðtal þar sem hann sagði að tölvuþrjótar hefðu brotist inn á reikninga þeirra og eytt myndum og látið líta út fyrir að þau væru hætt saman.
Hann sagði í viðtalinu að þau hefðu aldrei hætt saman og hefðu verið saman í sex mánuði.
Lögfræðingur Bynes fór fram á að parið eyddi óléttutilkynningunni af Instagram og biðlar til fjölmiðla og almennings að gefa þeim næði á þessum tíma.
Bynes og Michael kynntust á AA-fundum og hafa bæði verið edrú í rúmt ár. Móðir Bynes fer enn með forræði yfir henni en hún hefur gert tilraunir til að losna undan því á síðustu vikum.