Ninna Karla Katrínardóttir hvatti fólk til þess að setja bangsana sína út í glugga i hverfishópnum sínum á Facebook. Ninna fékk hugmyndina úr mömmuhópi á Facebook en upphaflega kemur hugmyndin erlendis frá. Hugmyndin gengur út á að setja bangsa út í glugga en börn geta svo farið í göngutúr og leitað að böngsum í gluggum.
Viðtökurnar í Laugarneshverfi hafa verið góðar og segir Ninna í samtali við mbl.is hlakka til að fara út í bangsagöngu á eftir. Rúmlega klukkutíma eftir að Ninna setti færsluna inn á Facebook voru þó nokkrir búnir að koma fyrir böngsum út í gluggum. Sjálf segist Ninna ætla að setja bangsa út í glugga þegar hún kemur heim til sín.
Ninna tekur fagnandi á móti allri afþreyingu fyrir börnin og segir það geta verið erfitt að hafa ofan fyrir tveimur börnum í lítilli íbúð. Skólastarf barna hennar raskast vegna kórónuveirunnar og eru alltaf eitt barn heima. „Maður þarf halda uppi dagskrá alla daga,“ segir Ninna.
Við hjá Árvakri viljum vekja athygli á því sem vel er gert á þessum erfiðu tímum. Ef þú ert með góða sögu af fyrirtækjum og einstaklingum sem eru að gera gott, sendu okkur ábendingu á netfangið stondumsaman@mbl.is.