Dæturnar fengu útrás á móður sinni

Eva Mendes fékk aðeins skrautlegri förðun frá dætrum sínum en …
Eva Mendes fékk aðeins skrautlegri förðun frá dætrum sínum en hún fær fyrir rauða dregilinn. Samsett mynd

Hollywood-leikararnir Eva Mendes og Ryan Gosling eru dugleg að sinna dætrum sínum tveimur. Nú mæðir enn meira á foreldrunum þar sem fjölskyldan þarf að halda sig mikið heima og dæturnar eru ekki með barnfóstrur. Á myndum sem Mendes birti á Instagram virðist hún hafa gefist upp á því að framfylgja reglum á heimilinu. 

Mendes er ansi skrautlega máluð á mynd sem hún birti nýlega en hún gefur í skyn að dætur hennar hafi fengið að leika sér við að farða andlit hennar. „Þær unnu,“ skrifaði Mendes við mynd af sjálfri sér. Þetta var ekki í fyrsta skipti sem dæturnar fengu útrás á andliti móður sinnar en fyrir tveimur vikum birti Mendes svipaða mynd og skrifaði að hún hefði misst alla þá stjórn sem hún hafði eitt sinn. 

Dætur þeirra Mendes og Gosling eru fæddar árin 2014 og 2016. Ekki er vitað hvort dæturnar hafi einnig fengið að farða föður sinn en Mendes birtir ekki myndir af manni sínum og börnum á samfélagsmiðlum. 

Ryan Gosling á tvær dætur með konu sinni, Evu Mendes.
Ryan Gosling á tvær dætur með konu sinni, Evu Mendes. AFP

Í Hollywood þykir sjálfsagt að vera með barnfóstrur en Mendes og Gosling eru ekki með slíka hjálp. Heimildarmaður Us Weekly sagði á dögunum að hjónin sinntu börnum sínum sjálf. „Að vera lokuð inni á heimili sínu með tvö lítil börn er stundum þreytandi, sérstaklega án hjálpar.“

View this post on Instagram

They’ve won ❤️

A post shared by Eva Mendes (@evamendes) on May 16, 2020 at 1:55pm PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda