Rithöfundurinn og pistahöfundurinn Sif Sigmarsdóttir og eiginmaður hennar Geir Freysson eignuðust sitt þriðja barn nú á dögunum. Sif tilkynnti um fæðingu sonarins á Facebook í dag.
„Þessi íslenski álfur skaust í heiminn í COVID-læstri London fyrir viku. Daginn eftir, þegar okkur mæðginum var ekið heim í Uber, voru pöbbarnir opnaðir aftur í fyrsta sinn síðan í mars. Heillvænlegri fyrirboða um framtíðina getur móðirin ekki ímyndað sér; við verðum mætt á pöbbinn í „bangers and mash“ og „pint“ innan skamms.
Drengurinn hefur hlotið nafnið Útgjaldaliður nr. 3 – en í daglegu tali er hann kallaður Bragi. Yfir og út,“ skrifar Sif í færslu sinni á Facebook.