Áhrifavaldurinn Fanney Dóra Veigarsdóttir og kærasti hennar Aron Ólafsson eiga von á sínu fyrsta barni saman.
Fanney Dóra greindi frá fréttunum á samfélagsmiðlum um helgina. „Þegar við héldum að það væri ekki hægt að verða hamingjusamari þá kemur lífið manni stanslaust á óvart! Yndislega krílið mun láta sjá sig í febrúar og gera okkur að foreldrum,“ segir Fanney Dóra í færslu sinni á Instagram.
Barnavefurinn óskar þeim innilega til hamingju!