Mikið mæðir á stjörnunum að koma sér í form sem fyrst eftir fæðingu. Söngkonan Ciara eignaðist sitt þriðja barn í júlí. Nú er hún búin að lýsa því yfir að hún ætli sér að missa þau tuttugu kíló sem söfnuðust á meðgöngunni.
Ekki kemur fram hvernig hún ætlar að ná settu marki en á meðgöngunni hélt hún sér í formi með því að æfa box. Þá hefur hún áður tjáð sig um líkamsrækt og sagðist þá stunda einhvers konar hreyfingu í rúma klukkustund á dag og passa vel upp á mataræðið. Hún segist borða margar litlar máltíðir yfir daginn og drekka mikið vatn.