Forræðismál leikaranna Angelinu Jolie og Brad Pitt virðist engan enda ætla að taka. Nú virðist þó eitthvað þokast í rétta átt þar sem kröfu Jolie um nýjan dómara var hafnað. Hjónin tilkynntu um skilnað sinn árið 2016 og eiga saman sex börn.
Fyrir nokkrum mánuðum lagði Jolie fram kröfu um að dómarinn John W. Ouderkirk viki vegna vanhæfis. Gögn sem ET hefur undir höndum sýna að kröfunni var hafnað. Í málsgögnunum kemur fram að Jolie tókst ekki að sanna vanhæfni Ouderkirk.
Ouderkirk sagðist hvorki eiga í persónulegum tengslum við Jolie né Pitt né vera með fordóma gagnvart öðru þeirra. Hann neitaði einnig að hafa ekki upplýst um viðskipta- og fjárhagsleg tengsl sín meðan á málaferlunum stóð.
Málaferli Jolie og Pitt hafa staðið í rúmlega fjögur ár. Þau voru saman í tólf ár og gift í tvö ár. Á síðasta ári fengu þau þó skilnað að því leyti að þau eru talin lagalega einhleyp en það á þó eftir að ganga frá úrlausnarefnum gagnvart börnum og fjármálum.