Edda Hermannsdóttir markaðsstjóri Íslandsbanka og Ríkharður Daðason hagfræðingur eiga von á barni en þau tilkynntu um komu barnsins á Faceook fyrr í dag. Fyrir á Edda tvö börn og Ríkharður eina dóttur.
Ríkharður og Edda hnutu hvort um annað 2017. Sumarið 2018 bað hann hennar í brúðkaupi Ragnhildar Steinunnar Jónsdóttur og Hauks Inga Guðnasonar sem fram fór á Ítalíu.
Fjölskyldan býr á fallegu heimili við Laugardalinn og sagði Edda frá því á Facebook í dag að jólabumban kæmi snemma í ár er hún greindi frá óléttunni.
Barnavefurinn óskar þeim hjartanlega til hamingju með væntanlega stækkun á fjölskyldunni.