Árið 2015 var körfuboltaflokkur fyrir stelpur stofnaður á Íslandi. Þjálfarinn var óvenjulegur og hækkaði í sífellu rána. Þær voru þjálfaðar eins og leiðtogar utan vallar og afrekskonur innan vallar. Þær settu sér snemma það markmið að keppa ávallt við þá bestu og voru sigursælar í drengja- og stúlknamótum. Þetta er saga 8-13 ára stúlkna sem vildu breyta viðmiðum í kvennakörfu á Íslandi. Með miklum fórnarkostnaði tókust þær á við það mótlæti sem því fylgdi.
Guðjón Ragnarsson er höfundur myndarinnar Hækkum rána sem er aðgengileg í Sjónvarpi Símans Premium.