Filippus prins var mikill fjölskyldumaður þrátt fyrir að samband hans við elsta soninn, Karl Bretaprins, hafi verið stormasamt. Filippus prins lést í gær en hann eignaðist fjögur börn með eftirlifandi eiginkonu sinni, Elísabetu Bretadrottningu.
Prinsinn gat verið hryssingslegur auk þess sem hann neitaði að sýna tilfinningar á almannafæri. Hann var þó stoltur faðir. Í tilefni af gullbrúðkaupi hans og Elísabetar árið 1997 sagði hann öll börnin sín hafa staðið sig frekar vel þrátt fyrir erfiðar aðstæður að því er fram kemur á vef The Guardian.
Mikið hefur verið fjallað um erfitt samband hans við Karl Bretaprins. Fram kom í ævisögu Karls eftir Jonathan Dimbleby að samband þeirra hefði verið erfitt og feðgarnir væru mjög ólíkir.
Filippus var mikill keppnismaður og leið vel í heimavistarskólanum Gordonstoun í Skotlandi. Hann fór fram á að Karl gengi einnig í skólann en Karli leið illa í skólanum fjarri foreldrum sínum enda töluvert mýkri maður en faðir hans. Karl er einnig sagður hafa hræðst föður sinn á sínum yngri árum. Anna prinsessa, næstelsta barn Filippusar og Elísabetar, er aftur á móti sögð vera það barn sem líkist helst föður sínum.
Filippus og Elísabet II voru gift í rúm 73 ár. Þau eignuðust fjögur börn, Karl, Önnu, Andrés og Játvarð. Þau eiga átta barnabörn og 10 barnabarnabörn og eitt á leiðinni.