Tan France, ein af stjörnunum í netflixþáttunum Queer Eye, á von á barni með eiginmanni sínum Rob France í sumar. Staðgöngumóðir gengur með barn hjónanna en þeir hafa þráð að verða foreldrar mjög lengi.
Stjarnan birti mynd af sér með sónarmynd á Instagram. „Við erum að fara að eignast barn. Nei, ég er ekki óléttur þrátt fyrir mjög raunverulega mynd,“ skrifaði France. Hann þakkaði staðgöngumóðurinni sérstaklega fyrir gjöfina eða hjálpina.
„Mig hefur langað í börn síðan ég var 19 eða 20. Ef ég hefði verið í góðu sambandi þá hefði ég reynt allt til þess að eignast börn,“ sagði France í viðtali árið 2019. Hann seldi fyrirtæki áður en hann sló í gegn á Netflix og var planið að eignast barn þá. Hann sagði mjög dýrt fyrir samkynhneigða karlmenn að eignast barn með hjálp staðgöngumóður.