Mæðgurnar Khloé Kardashian og True Thompson voru klæddar í stíl á nýjustu mynd raunveruleikastjörnunnar á Instagram. Voru þær mæðgur báðar klæddar í föt frá tískuhúsinu Dior.
Kardashian klæddist dökkbláum langermabol við wide-led buxur sem kosta 2.450 bandaríkjadali eða um 300 þúsund íslenskar krónur. Hún var einnig með sólgleraugu frá Dior, Solight 1 týpuna.
True litla klæddist pilsi og toppi í sama mynstri og buxur Kardashian.