Alexandra Helga Ívarsdóttir, náttúrukokkur og eiginkona Gylfa Þórs Sigurðssonar, er komin heim til Íslands með dóttur þeirra. Knattspyrnumaðurinn er í fríi og tekur ekki þátt í landsleikjum Íslands. Hjónin eignuðust sitt fyrsta barn hinn 5. maí.
Alexandra Helga birti mynd á Instagram af sér úti að ganga með dóttur sína í vagni fyrir austan fjall. „Sumar,“ skrifaði Alexandra, en hún var klædd í dúnúlpu og með eyrnaband. Á myndinni sést í Ingólfsfjall.
Aðeins eru nokkrar vikur síðan hjónin eignuðust sitt fyrsta barn og ætla þau greinilega að eyða sumrinu með Melrós Míu í faðmi fjölskyldunnar á Íslandi.