Beatrice prinsessa og eiginmaður hennar, Edoardo Mapelli Mozzi, eignuðust dóttur á laugardaginn. Þetta er fyrsta barn Beatrice en annað barn Mozzi. Breska konungsfjölskyldan greindi frá fæðingunni í dag.
Stúlkan kom í heiminn rétt fyrir miðnætti þann 18. september á spítalanum í Chelsea and Westminster að því fram kemur í tilkynningu. Segjast þau Beatrice og Mozzi vera himinlifandi að greina frá komunni. Beatrice þakkað ljósmæðrunum og starfsfólki spítalans fyrir aðstoðina.
Beatrice og Mozzi gengu í hjónaband í fyrrasumar. Þetta er annað barnabarn Andrésar prins, föður Beatrice, og fyrrverandi eiginkonu hans, Söruh Ferguson. Stúlkan er 12 barnabarnabarn Elísabetar Bretadrottningar og það 11 í erfðaröðinni.