„Ég skal viðurkenna að ég var algjörlega „starstruck“ enda fengum við eina sterkustu og flínkustu konu í heimi, Anníe Mist Þórisdóttir, til að dansa með okkur. Hún hefur unnið CrossFit Games tvisvar sinnum,“ segir Hulda Björk Svansdóttir móðir Ægis Þórs sem er með Duchenne-vöðvrýrnunarsjúkdóminn sem er banvænn.
Hulda Björk og Ægir Þór hittu Annie Mist og Freyju dóttur hennar í Crossfit Reykjavík og dönsuðu saman við lagið, Glaðasti hundur í heimi, með Friðriki Dór.