Söngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir og Ólafur Friðrik Ólafsson, kærasti hennar, eiga von á barni saman. Greint var frá því fyrr í dag að þau væru nýtt par og herma heimildir mbl.is að þau eigi einnig von á barni.
Jóhanna skildi við eiginmann sinn Davíð Siggeirsson fyrr á þessu ári. Greint var frá skilnaðinum í september. Þetta er þriðja barn Jóhönnu Guðrúnar en fyrir á hún tvö börn með Davíð.
Barnavefurinn óskar þeim innilega til hamingju!