Lára og Ljónsi lifna við í leikhúsinu

Birgitta Haukdal ásamt öllum þeim sem koma að gerð leiksýningarinnar.
Birgitta Haukdal ásamt öllum þeim sem koma að gerð leiksýningarinnar. Skjáskot/Facebook

Barnabækurnar um Láru og Ljónsa, eftir barnabókahöfundinn og tónlistarkonuna Birgittu Haukdal, hafa notið mikilla vinsælda síðustu ár. Fyrstu bækurnar litu dagsins ljós árið 2015 og hafa komið út tvær nýjar bækur á hverju ári síðan þá. Í ár verður engin breyting þar á en um liðna helgi var hulunni svipt af nýjum ævintýrum þeirra Láru og Ljónsa. Nýjustu bækurnar í safninu heita Lára lærir á hljóðfæri og Lára bakar. 

Bækurnar tvær fjalla um tvö ólík viðfangsefni en sögupersónurnar eru alltaf þær sömu. Hugmyndin með bókunum er sú að börn geti mátað sig við innihald þeirra og þann söguheim sem hver bók hefur að geyma, en hann er byggður á raunverulegum og hversdagslegum athöfnum. 

Þá hefur Birgitta náð að tengja bókarskrifin og tónlistina saman með einstökum hætti þar sem hún gefur einnig út söngbækur byggðar á þeim Láru og Ljónsa. Birgitta og dóttir hennar, Saga Júlía, sex ára, syngja saman inn á söngbækurnar. Birgitta segir stundirnar sem þær mæðgur hafi átt saman við upptökurnar í hljóðverinu hafa verið einstaklega dýrmætar og fallegar. Hugmyndin sé skemmti- og afþreyingarefni fyrir börn.

Saga Júlía hafði gaman af því að syngja öll sín …
Saga Júlía hafði gaman af því að syngja öll sín uppáhalds jólalög í hljóðverinu. Ljósmynd/Aðsend

„Nýju sögubækurnar heita Lára lærir á hljóðfæri og Lára bakar,“ segir Birgitta. „En svo er líka að koma út æðisleg jólasöngbók með Láru og Ljónsa þar sem ég og dóttir mín, Saga Júlía, syngjum öll vinsælustu jólalögin fyrir börnin. Svo geta krakkarnir líka spreytt sig sjálf á þeim án söngs líka. Svona heimagert jólakarokí. Sú bók er alveg dásamleg og svo krúttleg stund sem ég átti með stelpunni minni í studíó að taka upp hennar uppáhalds jólalög eins og Jólasveinar einn og átta og Dansaðu vindur,“ útskýrir Birgitta. 

Lára og Ljónsi á leiksvið

Birgitta lætur ekki þar við sitja heldur fékk hún hugmynd fyrir tæpum fjórum árum síðan um að setja upp leiksýningu byggða á ævintýrum Láru og Ljónsa. Hugmyndin hefur verið að gerjast innra með Birgittu síðan þá, en hún er ekki þekkt fyrir að gera neitt nema af alúð og fyllsta metnaði. Draumur Birgittu varð að veruleika en um liðna helgi var leiksýningin Lára og Ljónsi - Jólasaga, svo frumsýnd í Þjóðleikhúsinu. Guðjón Davíð Karlsson, eða Gói, eins og hann er oftast kallaður, leikstýrir sýningunni en Birgitta kom einnig að gerð verksins. Birgitta segir miðasöluna hafa farið vel af stað og að mikil aðsókn sé á sýninguna. Kórónuveirufaraldurinn sé ekki að hindra áhuga foreldra að komast í leikhús með börnin sín fyrir jólahátíðina.

Flottu mæðgur.
Flottu mæðgur. Ljósmynd/Aðsend

„Hugmyndin af Jólasögunni kom til mín árið 2017 og ég hafði svo samband við Góa ári síðar og tókum við okkur tvö ár í að skrifa leikgerðina. Það kom enginn annar til greina hjá mér í þetta samstarf en Gói þar sem hann hefur einstaka hæfileika að skrifa og skapa fyrir börn. Gói er líka frábær leikstjóri og algjörlega punkturinn yfir i-ið að fá hann sem leikstjóra fyrir verkið,“ segir Birgitta. „Við erum með frábæra unga leikara í sýningunni. Þórey Birgisdóttir fer með hlutverk Láru og það er ólýsanlegt að sjá hvernig Lára lifnar við í hennar sköpun. Hlutverk Ljónsa er í höndum Bjarna Kristbjörnssonar og Kjartan Darri Kristjánsson fer með hlutverk Atla og Pabba. Mér finnst þessi þrenning okkar algjörlega geggjuð og geislandi. Ég fæ gæsahúð á hverju prufurenslinu sem við erum búin að halda,“ lýsir hún.

„Viðtökurnar hafa verið mjög góðar. Miðasalan fór frábærlega af stað og algjörlega framar björtustu vonum. Það varð nánast uppselt strax og við erum að rembast við að bæta við aukasýningum. Litla sviðið í leikhúsinu tekur ekki það marga þannig ég er að vonast til að ástandið í samfélaginu komi ekki til með að hafa áhrif á okkur,“ segir hin fjölhæfa Birgitta Haukdal.

Birgitta Haukdal og dóttir hennar, Saga Júlía, syngja inn á …
Birgitta Haukdal og dóttir hennar, Saga Júlía, syngja inn á söngbækurnar um Láru og Ljónsa. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda