Maralee Nichols frumsýnir barnið sem hún segist hafa getið með Tristan Thompson körfuboltakappa og kærasta Khloé Kardashian.
Á myndinni er barnið fimm daga gamalt. Hún klæðist jólanáttfötum og stillir sér upp með barnið í fanginu fyrir framan jólatré.
„Í stað þess að einblína á neikvæðni þá ætla ég að fagna því að vera móðir og gera mitt besta fyrir son minn,“ segir Nichols í yfirlýsingu. „Ég vil ekki meiri athygli frá fjölmiðlum og hef ekki áhuga á rómantísku sambandi við Tristan. Mitt markmið er að ala strákinn minn upp í öruggu, heilbrigðu og ástríku umhverfi.“
Nichols fer fram á barnabætur frá Thompson undir lögum Kaliforníuríkis en Thompson reyndi að færa málið yfir til Texasríkis þar sem hann hefði þurft að greiða lægra meðlag í því ríki. Því var vísað frá og mun því faðernismálið líklega fara fram undir lögum Kaliforníuríkis.