Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson, og eiginkona hans, Hafdís Björk Jónsdóttir tannlæknir, eiga von á sínu fjórða barni á næsta ári. Frá þessu greindi Jón á samfélagsmiðlum nú á jóladag.
Fyrir eiga þau hjónin soninn Jón Tryggva og dæturnar Mjöll og Sigríði Sól. Nú er von á litlum dreng.
Jón greindi frá fjórða barninu í færslu á Instagram og sagði þar einnig að jólin hefðu verið ansi óhefðbundin í ár hjá fjölskyldunni þar sem þau væru í einangrun vegna kórónuveirunnar.
Barnavefurinn óskar þeim innilega til hamingju!